Saltarinn 65Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 65

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Ljóð.

Þér ber lofsöngur, Guð, á Zíon og við þig séu heitin efnd.

Þú sem heyrir bænir, til þín kemur alt hold.

Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.

Sæll er sá, er þú útvelur og lætur nálægjast þig, til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.

Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,

þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,

þú sem stöðvar brimgny hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystið í þjóðunum,

svo að þeir, er búa við endimörk jarðar, óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.

Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni; þú hefir framleitt kom þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.

Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess; með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.

Þú hefir krýnt árið með gæzku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feili.

Það drýpur af heiðalöndunum og hæðirnar girðast fögnuði.

Hagarnir klæðast hjörðum og dalirnir hyljast korni; alt fagnar og syngur.