Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur,
Heyr, ó Guð, raust mína, er eg kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.
Skyl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,
er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng,
Slit þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann alt í einu, hvergi hræddir.
Þeir binda fastmælum með sér ilt áform, tala um að leggja leynisnörur; þeir hugsa: Hver ætti sjái það?
Þeir upphugsa ranglæti: Vér erum búnir; vel ráðin ráð! því að hugskot hvers eins og hjarta er full véla.
Þá lýstur Guð þá með örinni, alt í einu verða þeir sárir,
og þeir verða feldir, er syndir tungu þeirra koma þeim í koll, allir þeir, er sjá þá, munu hrista höfuðið.
Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.
Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.