Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Minningarljóð.
Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, skunda, Drottinn, mér til hjálpar.
Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.
Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er segja: Hæ,
En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir, er unna hjálpræði þínu, skulu sífelt segja: Vegsamaður sé Guð!
Eg er vesall og snauður, ó Guð, hraða þér til mín. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn!