Saltarinn 71Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 71

Hjá þér, Drottinn, leita eg hælis, - lát mig aldrei verða til skannnar;

frelsa mig og bjarga mér eftir réttlæti þínu; hneig eyru þín il mín og hjálpa mér;

ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi.

Guð minn, bjarga mér úr hendi óguðlegra, undan valdi illvirkja og harðstjóra.

Því að þú ert von mín, Drottinn Guð er athvarf mitt frá æsku;

við þig hefi eg stuðst frá móðurlífi, frá móðurskauti hefir þú verið skjól mitt, um þig hljómar ætíð lofsöngur minn.

Eg er mörgum orðinn sem undur, en þú ert mér örugt hæli.

Munnur minn er fullur af lofstír þínum, af dýrð þinni, liðlangan daginn.

Útskúfa mér eigi í elli minni, yfirgef mig eigi þá er þróttur minn þverrar.

Því að óvinir mínir tala um mig, ið þeir, er sitja um líf mitt, bera ráð sín saman:

»Guð hefir yfirgefið hann; eltið hann og grípið hann, því að enginn bjargar«.

Guð, ver eigi fjarri mér, Guð minn, skunda til liðs við mig.

Lát þá, er sýna mér fjandskap, farast með skömm, lát þá íklæðast háðung og svívirðing, er óska mér ógæfu.

En eg vil sífett vona, og auka enn á allan lofstír þinn.

Munnur minn skal segja frá réttlæti þínu, frá hjálpsemdum þínum liðlangan daginn, því að eg veit eigi tölu á þeim.

Eg vil koma með máttarverk Drottins Guðs, eg vil boða réttlæti þitt einungis.

Guð, þú hefir kent mér frá æsku, og alt til þessa kunngjöri eg dásemdarverk þín.

Og jafnvel þegar eg er gamall orðinn og grár fyrir hærum, munt þú, ó Guð, eigi yfirgefa mig, að eg megi kunngjöra armlegg þinn komandi kynslóð. Máttur þinn

og réttlæti þitt, ó Guð, nær til himins, þú sem hefir framið stórvirki; Guð, hver er sem þú?

Þú, sem hefir látið oss horfa upp: á miklar nauðir og ógæfu, þú munt láta oss lifna við af nýju og láta oss aftur stíga upp úr undirdjúpum jarðar,

Þú munt auka við tign mína og aftur veita mér huggun.

Þá vil eg lofa trúfesti þína með hörpuleik, Guð minn, leika á gígju fyrir þér, þú hinn Heilagi í Ísrael.

Varir mínar skulu fagna, er eg leik fyrir þér, og sál mín, er þú hefir leyst.

Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt liðlangan daginn, því að þeir urðu til skammar, já hlutu kinnroða, er óskuðu mér ógæfu. Í,