Dagatal

4. sunnudagur í langaföstu

Sunnudagur á lönguföstu — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.

Langafasta · Vika 4

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í sunnudagsmessunni

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ó, kom í hátign, Herra minn.Þér heilsar allur lýðurinnog klæðum lagða braut þér býr,með blessun þér á móti snýr.Ó, kom í hátign, Herra minn,því harla nærri' er dauði þinn.Þín sigurför mót Satan hér,mót synd og dauða hafin er.Ó, kom í hátign, Herra minn,af hæðum fórnargjörning þinnmeð undrun skoðar englaher,sjá, augun himnesk fylgja þér.Ó, kom í hátign, Herra minn,til hörmunganna ríð nú inn.Þinn faðir hæst á himnum er,hans hjarta bíður eftir þér.Ó, kom í hátign, Herra minn,með hátign gakk í dauða þinn.Á krossi mildu höfði hneig,á himni' og jörð svo ríkið eig. Amen.

Sálmur 118

Andstef · Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.

1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

2Það mæli Ísrael * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

3Það mæli Arons ætt * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

4Það mæli þeir sem óttast Drottin * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin * hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.

6Drottinn er með mér, ég óttast eigi * hvað geta menn gjört mér?

7Drottinn er með mér með hjálp sína * og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.

8Betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta mönnum,

9betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

10Allar þjóðir umkringdu mig * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

11Þær umkringdu mig á alla vegu * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla * en Drottinn veitti mér lið.

14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur * og hann varð mér til hjálpræðis.

15Fagnaðar– og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra * Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,

16hægri hönd Drottins upphefur * hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

17Ég mun eigi deyja * heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.

18Drottinn hefur hirt mig harðlega * en eigi ofurselt mig dauðanum.

19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins * að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

20Þetta er hlið Drottins * réttlátir menn fara inn um það.

21Ég lofa þig * af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu * er orðinn að hyrningarsteini.

23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið * það er dásamlegt í augum vorum.

24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gjört * fögnum, verum glaðir á honum.

25Drottinn, hjálpa þú * Drottinn, gef þú gengi!

26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins * frá húsi Drottins blessum vér yður.

27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum * allt inn að altarishornunum.

28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér * Guð minn, ég vegsama þig.

29Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.

Sálmur — Dn 3, 52-57 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Guð, frelsa oss í mætti þínum; leystu oss undan krafti óvinarins.

52„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir allt að eilífu * og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir allt um allar aldir.

53Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar * og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.

54Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns * og mjög lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

55Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum * og lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð, frelsa oss í mætti þínum; leystu oss undan krafti óvinarins.

Sálmur 150

Andstef · Lofið Drottin fyrir máttarverk hans.

1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!

2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!

3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!

4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!

5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!

6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofið Drottin fyrir máttarverk hans.

Stuttur ritningarlestur

Neh 8, 9. 10Þessi dagur er helgaður Drottni, Guði yðar. Sýtið eigi né grátið! Því að þessi dagur er helgaður Drottni vorum. Verið því eigi hryggir, því að gleði Drottins er hlífiskjöldur yðar.

Stutt svarvers

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Þú sem varst særður vegna vorra misgjörða.

Miskunna þú oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf Son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Dýrð sé Guði því að gæska hans á sér engin takmörk. Biðjum í nafni Jesú Krists, sem lifir um aldir alda og biður oss árnaðar:Kveiktu eld kærleika þíns í hjörtum vorum.Guð miskunnsemdar, láttu daginn í dag vera auðugan af góðverkum,og dag örlætis við alla sem á vegi vorum verða.Af vötnum flóðsins bjargaðir þú Nóa með örkinni,reistu þá sem fræðslu njóta til nýs lífs af vötnum skírnarinnar.Megum vér eigi lifa af einu saman brauði,heldur hverju því orði sem fram gengur af þínum munni.Hjálpa oss að binda enda á allan ágreining,til að vér megum fagna í gjöfum friðar þíns og kærleika.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með orði þínu tókst þú mannkynið undursamlega í sátt við þig. Vér biðjum, veit að með árvökulli trúrækni og fögnuði í trúnni fái kristinn lýður skundað til móts við komandi hátíð. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Við kross þinn, Jesús, jafnanvil ég mér hæli fá.Þar hellubjargið best ég finn,sem byggt ég traust get á.Það hæli er í eyðimörksvo ágæt höfn og blíð,þar sem reika' eg einn um ókunn löndgegnum angist, neyð og stríð.Ó, hjálp í sálarhrelling,ó, hæli, sem ég fann,við krossinn fagra frelsarans,þar frið ég sálu vann.Sem Jakob nætur sá í sýnupp sólar ljúkast hvel,get ég stigann séð frá krossi Krists,þar í kærleiks von ég dvel.En skammt frá krossins skuggaég skelfdur gröf sé nær,og dimm og geigvæn dauðans nóttþar drunga yfir slær. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Guð hefur skipað Krist til að dæma lifendur og dauða.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð hefur skipað Krist til að dæma lifendur og dauða.

Sálmur 112

Andstef · Sæll er sá maður sem er miskunnsamur vegna Drottins; hann mun halda velli að eilífu.

1Hallelúja. Sæll er sá maður * sem óttast Drottin og hefur mikla unun af boðum hans.

2Sæði hans verður voldugt á jörðunni * ætt réttvísra mun blessun hljóta.

3Nægtir og auðæfi eru í húsi hans * og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.

4Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu * mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.

5Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána * sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,

6því að hann mun eigi haggast að eilífu * hins réttláta mun minnst um eilífð.

7Hann óttast eigi ill tíðindi * hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.

8Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi * og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.

9Hann hefur miðlað mildilega, gefið fátækum * réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.

10Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst * nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sæll er sá maður sem er miskunnsamur vegna Drottins; hann mun halda velli að eilífu.

Sálmur — 1Pt 2, 21-24 — Um sjálfviljuga þjáningu Krists, þjóns Guðs

Andstef · Allt hefur ræst sem Guð boðaði fyrirfram fyrir munn spámanna sinna, að Kristur mundi líða þjáningar.

21Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd * til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.

22„Hann drýgði ekki synd * og svik voru ekki fundin í munni hans.“

23Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi * er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir.

24Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð * til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allt hefur ræst sem Guð boðaði fyrirfram fyrir munn spámanna sinna, að Kristur mundi líða þjáningar.

Stuttur ritningarlestur

1Kor 9, 24-25Þeir, sem keppa á íþróttavelli, hlaupa að sönnu allir, en einn fær sigurlaunin. Hlaupið þannig, að þér hljótið þau. Sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, neitar sér um allt. Þeir sem keppa gjöra það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig, en vér óforgengilegan.

Stutt svarvers

Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.

Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.

Heyr, Kristur, bæn vora og ákall.

Því að vér höfum syndgað gegn þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Sá sem iðkar sannleikan kemur til ljóssins, svo að augljóst verði að verk hans eru í Guði gerð.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með orði þínu tókst þú mannkynið undursamlega í sátt við þig. Vér biðjum, veit að með árvökulli trúrækni og fögnuði í trúnni fái kristinn lýður skundað til móts við komandi hátíð. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007