Síðari Kroníkubók 36Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 36

En landslýðurinn tók Jóahas Jósíason og gjörði hann að konungi í Jerúsalem eftir föður hans.

Jóahas var tuttugu og þriggja ára að aldri, þá er hann varð konungur, og þrjá mánuði ríkti hann í Jerúsalem.

En Egiptalands-konungur rak hann frá ríki, til þess að hann skyldi eigi framar ríkja í Jerúsalem, og lagði skattgjald á landið, hundrað talentur silfurs og tíu talentur gulls.

Og Egiptalands-konungur gjörði Eljakím bróður hans að konungi yfir Júda og Jerúsalem, og breytti nafni hans í Jójakím. En Jóahas bróður hans tók Nekó og flutti til Egiptalands.

Jójakím var tuttugu og fimm ára að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem. Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, Guðs síns.

Gegn honum fór Nebúkadnezar konungur í Babel herför og batt hann eirfjötrum til þess að flytja hann til Babel.

Af áhöldum musteris Drottins flutti Nebúkadnezar og nokkuð til Babel og lét þau í höll sína í Babel.

En það sem meira er að segja um Jójakím og svívirðingar hans, er hann aðhafðist, og annað ilt, er fanst í fari hans, það er ritað í bók Ísraels- og Júda-konunga. Og Jójakín sonur hans tók ríki eftir hann.

Jójakín var átta vetra gamall, þá er hann varð konungur, og þrjá mánuði og tíu daga ríkti hann í Jerúsalem. Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins.

En að ári liðnu sendi Nebúkadnezar konungur og lét flytja hann til Babel, ásamt verðmætum áhöldum úr musteri Drottins, en gjörði Zedekía bróður hans að konungi yfir Júda og Jerúsalem.

Zedekía var tuttugu og eins árs að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, Guðs síns, hann auðmýkti sig eigi fyrir Jeremía spámanni, er talaði í nafni Drottins.

Hann rauf og þá trúnaðareiða, er Nebúkadnezar konungur hafði látið hann vinna sér við Guð. En hann þverskallaðist og herti hjarta sitt, svo að hann eigi sneri sér til Drottins, Guðs Ísraels.

Þá sýndu og allir höfðingjar prestanna og lýðsins mikla ótrúmensku með því að drýgja allar sömu svívirðingarnar og heiðingjarnir, og saurguðu svo musteri Drottins, það er hann hafði helgað í Jerúsalem.

Og Drottinn, Guð feðra þeirra, sendi þeim stöðugt áminningar fyrir sendiboða sína, því að hann vildi þyrma lýð sínum og bústað sínum.

En þeir smánuðu sendiboða Guðs, fyrirlitu orð hans og gjörðu gys að spámönnum hans, unz reiði Drottins við lýð hans var orðin svo mikil, að eigi mátti við gjöra.

Hann lét Kaldea-konung fara herför gegn þeim, og drap hann æskumenn þeirra með sverði í helgidómi þeirra; þyrmdi hann hvorki æskumönnum né ungmeyjum, öldruðum né örvasa — alt gaf hann honum á vald.

Og öll áhöld Guðs húss, stór og smá, svo og fjársjóðu Drottins húss og fjársjóðu konungs og höfðingja hans — alt flutti hann til Babel.

Þeir brendu musteri Guðs, rifu niður Jerúsalem-múra, lögðu eld í allar hallir í henni, svo að alt verðmætt í henni týndist.

Og þá, sem komist höfðu undan sverðinu, herleiddi hann til Babel, og urðu þeir þjónar hans og sona hans, unz Persaríki náði yfirráðum,

til þess að rætast skyldi orð Drottins fyrir munn Jeremía: Þar til er landið hefir fengið hvíldarár sín bætt upp, alla þá stund, sem það var í eyði, naut það hvíldar, unz sjötíu ár voru liðin.

En á fyrsta ríkisári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn Kýrusi Persakonungi því í brjóst — til þess að orð Drottins fyrir munn Jeremía rættust —, að láta boð út ganga um alt ríki sitt, og það í konungsbréfi, svolátandi boðskap:

Svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarðarinnar hefir Drottinn, Guð himnanna, gefið mér, og hann hefir skipað mér að reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda. Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir gjörvallri þjóð hans, með honum sé Drottinn, Guð hans, og hann fari heim.