Saltarinn 137Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 137

Við Babel-fljót, þar sátum vér og grétum, er vér mintumst Zíonar;

á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar.

Því að þar heimtuðu herleiðendur vorir söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti: Syngið oss Zionarkvæði!

Hvernig ættum vér að syngja Drottins-ljóð í öðru landi?

Ef eg gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd;

tunga mín loði mér við góm, ef eg eigi man til þín, ef Jerúsalem er eigi allra bezta yndið mitt.

Mun þú Edóms niðjum, Drottinn, óheilladag Jerúsalem, þegar þeir æptu: Rífið, rifið alt niður til grunna!

Babel-dóttir, þú sem eyðileggur, heill þeim, er geldur þér í fyrir það, sem þú hefir gjört oss.

Heill þeim, er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein.