Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Eftir Davíð. Eg vil lofa þig af öllu hjarta, lofsyngja þér frammi fyrir guðunum;
eg vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti, því að þú hefir gjört nafn þitt, orð þitt, meira öllu öðru.
Þegar eg hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð, er eg fann kraft hjá mér.
Allir konungar á jörðu skulu lofa þig, Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum,
þeir skulu syngja um vegu Drottins, því að mikil er dýrð Drottins.
Því að Drottinn er hár og sér þó hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska.
Þótt eg sé staddur í þrenging, lætur þú mig lífi halda, þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.
Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig; Drottni, miskunn þín varir að eilífu, yfirgef eigi verk handa þinna.