Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig.
Hvort sem eg sit eða stend, þá veizt þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.
Hvort sem eg geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú,
því að eigi er það orð á tungu minni, að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.
Þú umlykur mig á bak og brjóst, og hönd þína hefir þú lagt á mig;
það er undursamlegra en svo, að eg fái skilið, of háleitt, eg er því eigi vaxinn.
Hvert get eg farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu?
Þótt eg stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt eg gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar;
þótt eg lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið yzta haf,
einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér;
og þótt eg segði: »Myrkrið hylji mig og ljósið í kring um mig verði nótt«,
þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur; myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.
Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi;
eg lofa þig fyrir það, að þú hefir birzt ægilega undursamlegur; undursamleg eru verk þín, og sál mín þekkir það vel.
Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar eg var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.
Augu þín sáu mig, er eg enn var ómyndað efni, æfidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.
En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar;
ef eg vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin, eg mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.
Ó að þú, Guð, vildir deyða hina óguðlegu og morðingjarnir vikju frá mér,
þeir er þrjózkast gegn þér með svikum og leggja nafn þitt við hégóma.
Ætti eg eigi, Drottinn, að hata þá, er hata þig, og hafa viðbjóð á þeim, er rísa gegn þér?
Eg hata þá fullu hatri, þeir eru orðnir óvinir mínir.
Prófa mig, Guð, og þektu hjarta mitt; rannsaka mig og þektu hugsanir mínar;
og sjá þú, hvort eg geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg.