Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.
Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,
þeim er hyggja á ilt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum;
þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðru-eitur er undir vörum þeirra. Sela.
Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.
Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. Sela.
Eg sagði við Drottin: »Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátraust minni.
Drottinn, Drottinn, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.
Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi hepnast«. Sela.
Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá;
hann láti rigna á þá eldsglóðum, hrindi þeim í eldinn, í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.
Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífeldum höggum.
Eg veit, að Drottinn flytur mál volaðra, rekur réttar aumingjanna.
Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.