Saltarinn 141Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 141

Drottinn, eg ákalla þig, skunda þú til mín, ljá eyra raust minni, er eg ákalla þig.

Bæn mín sé framborin sem ilmfórn fyrir auglit þitt, upplyfting handa minna sem matfórn að kveldi.

Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn, gæzlu fyrir dyr vara minna.

Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu, að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra.

Slái réttlátur maður mig af elsku og hirti mig, þá skal höfuð mitt eigi færast undan höfuðsmyrslum, en geri hann það aftur, þá snýst bæn mín gegn ilsku þeirra.

Dómurum þeirra verður hrundið niður af kletti, og þeir hafa heyrt orð mín, að þau eru yndisleg.

Eins og maður plægir og klýfur jörðina, svo var beinum vorum tvístrað í gin Heljar.

Því að til þín, Drottinn, Drottinn, mæna augu mín, hjá þér leita eg hælis, sel þú eigi fram líf mitt.

Varðveit. mig fyrir gildru þeirra, er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna.

Hinir óguðlegu falli í sitt eigið net, allir saman, en eg sleppi undan.