Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Maskíl eftir Davíð, er hann var í hellinum. Bæn.
Eg hrópa hástöfum til Drottins, hástöfum grátbæni eg Drottinn.
Eg úthelli kveini mínu fyrir honum, tjái honum neyð mína.
Þegar andi minn örmagnaðist í mér — en þú þekkir götu mína — hafa þeir, á leið þeirri, er eg geng, lagt snörur leynt fyrir mig.
Eg lít til hægri handar og skygnist um, en enginn kannast við mig; mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir mér.
Eg hrópa til þín Drottinn, eg segi: Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.
Veit athygli kveini mínu, því að eg er mjög þjakaður, bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari.
Leið mig út úr dýflissunni, að eg megi lofa nafn þitt; hinir réttlátu skipast í kring um mig, þegar þú gjörir vel til mín.