Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Daviðs-sálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni; bænheyr mig í réttlæti þínu,
og gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn lifandi maður er réttlátur fyrir augliti þínu.
Því að óvinurinn eftir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá, sem löngu eru dánir.
Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér;
eg minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.
Eg breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér. Sela.
Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast; byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að eg verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.
SLát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti eg; gjör mér kunnan þann veg, er eg á að ganga, því að til þín hef eg sál mína.
Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, þín bíð eg.
Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð; þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns,
og eyð þú sakir miskunnar þinnar óvinum mínum og tortím öllum þeim, er að mér þrengja, því að eg er þjónn þinn.