Saltarinn 144Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 144

Eftir Davíð. Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt, sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu,

miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari, skjöldur minn og athvarf, sem leggur þjóðir undir mig.

Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann, mannsins barn, að þú gefir því gaum.

Maðurinn er sem vindblær, dagar hans sem hverfandi skuggi.

Drottinn, sveig þú himin þinn og stíg niður, snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki;

lát eldinguna leiftra og tvístra þeim, skjót örvum þínum og skelf þá.

Rétt út hönd þína frá hæðum, hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna,

hverra munnur mælir tál og hægri hönd þeirra er lyginnar hægri hönd.

Guð, eg vil syngja þér nýjan söng, eg vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu,

þú sem veitir konungunum sigur, sem hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna, hverra munnur mælir tál og hægri hönd þeirra er lyginnar hægri hönd.

til þess að synir vorir megi verða sem þroskaðir teinungar Í æsku sinni, dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl,

hlöður vorar fullar og veiti afurðir af hverri tegund, fénaður vor geti af sér þúsundir, verði tíþúsundfaldur á haglendum vorum,

uxar vorir klyfjaðir, ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.

Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottni að Guði.