Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-lofsöngur. Eg vil vegsama þig, ó Guð minn, þú konungur, og prísa nafn þitt um aldur og æfi.
Á hverjum degi vil eg prísa þig og lofa nafn þitt um aldur og æfi.
Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur.
Ein kynslóðin vegsamar verk þín fyrir Annari og kunngjörir máttarverk þín.
Þær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar, eg vil syngja um dásemdir þínar.
Og um mátt ógnarverka þinna tala þær, eg vil segja frá stórvirkjum þínum.
Þær minna á þína miklu gæzku og fagna yfir réttlæti þínu.
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæzkuríkur.
Drottinn er öllum góður og miskunn hans nær til allra hans verka.
Öll verk þín lofa þig, Drottinn, og dýrkendur þínir prísa þig.
Þeir tala um dýrð konungdóms þíns, segja frá veldi þínu,
il þess að kunngjöra mönnum veldi þitt, hina dýrðlegu tign konungdóms þíns.
Konungdómur þinn er konungdómur um allar aldir og ríki þitt stendur frá kyni til kyns. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.
Drottinn styður alla þá, er ætla að hníga, og reisir upp alla niðurbeygða.
Allra augu vona á þig og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma,
þú lýkur upp hendi þinni og seður alt, sem lifir, með blessun.
Drottinn er réttlátur í öllum sínum vegum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.
Drottinn er nálægur öíitim, sem ákalla hann, öllum, sem ákalla hann í einlægni.
Hann uppfyllir ósk þeirra, er óttast hann, og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.
Drottinn varðveitir alla þá, er elska hann, en eyðir öllum óguðlegum.
Munnur minn skal mæla lofstír Drottins, alt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og æfi.