Saltarinn 146Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 146

Halelúja. Lofa þú Drottin, sála mín!

Eg vil lofa Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan eg er til.

Treystið eigi tignarmennum, manni, sem enga hjálp getur veitt;

andi hans líður burt, hann verður aftur að jörðu, á þeim degi verða áform hans að engu.

Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sem setur von sína á Drottin, Guð sinn,

Shann sem skapað hefir himin og jörð, hafið og alt, sem í þeim er, í hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

Zsem rekur réttar kúgaðra, veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir hina bundnu,

SDrottinn opnar augu blindra. Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa, en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

Drottinn er konungur að eilífu, Guð þinn, Zíon, frá kyni til kyns. Halelúja.