Saltarinn 147Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 147

Halelúja, því að það er gott að leika fyrir Guði vorum, því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.

Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael;

hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og bindur um benjar þeirra.

Hann ákveður tölu stjarnanna, kallar þær allar með nafni.

Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg;

Drottinn annast volaða, en óguðlega lægir hann að jörðu.

syngið Drottni með þakklæti, leikið á gígju fyrir Guði vorum,

Shann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðunni, lætur gras spretta á fjöllunum;

hann gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum, þegar þeir kalla.

Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins, eigi þóknun á fótleggjum mannsins.

Drottinn hefir þóknun á þeim, er óttast hann, þeim er bíða miskunnar hans.

Vegsama Drottin, Jerúsalem, lofa þú Guð þinn, Zíon,

þvíaðbann hefir gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín, sem í þér eru;

hann gefur landi þínu frið, seður þig á hinu kjarnbezta hveiti;

hann sendir orð sitt til jarðar, boð hans hleypur með hraða.

Hann gefur snjó eins og ull, stráir út hrími sem ösku.

Hann sendir hagl sitt sem brauðmola; hver fær staðist frost hans?

Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása og vötnin renna.

Hann kunngjörði Jakob orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði.

Svo hefir hann eigi gjört við nema þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja.