Einnig yður, sem dauðir voruð, vegna afbrota yðar og synda,
er þér áður genguð í, samkvæmt aldarhætti þessa heims, í samkvæmni við höfðingja valdsins í loftinu, andans, sem nú verkar í sonum óhlýðninnar,
sem einnig vér lifðum áður allir meðal, í girndum holds vors, gjörandi vilja holdsins og hugrenninganna og vorum að eðli til reiðibörn eins og hinir.
En Guð, sem ríkur er af miskunn, lífgaði með Kristi oss, vegna sinnar miklu elsku, sem hann elskaði oss með,
jafnvel oss, sem vorum dauðir, vegna misgjörðanna — af náð eruð þér hólpnir orðnir —
og uppvakti oss með honum og setti oss með honum á himnum, í Kristi Jesú,
til þess að sýna á hinum komandi öldum hinn yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar, í gæsku við oss í Kristi Jesú;
því að af náðinni eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú, og það er ekki af yður; Guðs er gjöfin.
Ekki af verkum, til þess að enginn skuli hrósa sér.
Því að hans verk erum vér, skapaðir í Kristi Jesú til góðra verka, sem Guð hefir fyrirbúið til þess að vér skyldum framganga í þeim.
Minnist þess vegna þess, að þér, sem áður voruð heiðingjar í holdi, sem kallaðir eruð yfirhúð af umskurninni, sem kölluð er, og er á holdi með höndum gjörð,
að þér voruð á þeim tíma án Krists, útilokaðir frá þegnrétti Ísraels og fjarlægir sáttmálum fyrirheitisins, án vonar og án Guðs í heiminum.
En nú, í Kristi Jesú eruð þér, sem áður voruð í fjarlægð, nálægir orðnir í blóði Krists;
því að hann er vor friður, hann sem úr báðum gjörði eitt og reif niður millivegg girðingarinnar,
þá er hann afmáði með holdi sínu fjandskapinn, lögmál boðorðanna í tilskipunum, til þess að umskapa í sjálfum sér hina tvo til að vera einn nýr maður, semjandi frið,
og að friðþægja þá báða í einum líkama við Guð, fyrir krossinn, þá er hann hafði deytt fjandskapinn á honum;
og hann kom og boðaði frið yður, hinum fjarlægu, og frið hinum nálægu.
Því að fyrir hann höfum vér hvorirtveggja í einum anda aðgang til föðurins.
Þér eruð þess vegna ekki framar aðkomumenn og útlendingar, heldur eruð þér samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs,
uppbygðir á grundvelli postulanna og spámannanna, þar sem Kristur Jesús er sjálfur hyrningarsteinn,
sem hver bygging samtengist í og vex og verður heilagt musteri í drotni,
sem einnig þér eruð sambygðir í til bústaðar Guðs í andanum.