Þessa vegna er eg, Páll, bandingi Krists Jesú, vegna yðar heiðingjanna,
ef þér annars hafið heyrt um þá ráðstöfun Guðs náðar, sem mér er veitt yður til handa,
að fyrir opinberun var leyndardómurinn auglýstur mér, eins og eg áður hefi skrifað í stuttu máli,
svo að þér getið, þá er þér lesið það, af því skynjað skilning minn á leyndardómi Krists,
sem hjá öðrum kynslóðum var ekki auglýstur sonum mannanna, eins og hann hefir nú verið opinberaður hinum heilögu postulum hans og spámönnum í andanum,
að heiðingjarnir séu samarfar og limir á sama líkama og samhluttakendur fyrirheitisins í Kristi Jesú, fyrir fagnaðarerindið,
hvers þjónn eg er orðinn, eftir gjöf náðar Guðs, sem mér hefir verið veitt, eftir framkvæmd máttar hans;
mér, hinum minsta allra heilagra, var veitt þessi náð, að boða heiðingjunum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists,
og að upplýsa alla um það, hver sé ráðstöfun leyndardómsins, sem frá eilífð hefir verið hulinn í Guði, sem alt hefir skapað,
til þess að hin margbreytta speki Guðs skyldi nú fyrir kirkjuna auglýst verða völdunum og yfirráðunum á himnum,
eftir eilífri fyrirætlun, sem hann framkvæmdi í Kristi Jesú, drotni vorum,
í hverjum vér höfum djörfungina og aðganginn í trausti fyrir trúna á hann.
Fyrir því bið eg að þér látið eigi hugfallast í þrengingum mínum fyrir yður, sem eru yðar heiður.
Þess vegna beygi eg kné mín fyrir föðurnum,
sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu,
að hann gefi yður eftir ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast með krafti fyrir anda sinn í hinum innra manni,
til þess að Kristur megi búa fyrir trúna í yðar hjörtum,
til þess að þér, rótfestir og grundvallaðir í kærleika, megnið að skilja ásamt öllum heilögum, hver sé breiddin, lengdin, hæðin og dýptin
og að þekkja kærleik Krists, sem yfirgnæfir þekkinguna, til þess að þér fyllist til allrar fyllingar Guðs.
En honum, sem megnar að gjöra fram yfir alt, yfirgnæfanlega mikið fram yfir það, sem vér biðjum eða skynjum, eftir þeim krafti, sem í oss verkar,
honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú um allar kynslóðir, um aldir alda. Amen.