Efesusbréfið 1Krans-útgáfa

Efesusbréfið 1

Páll, postuli Krists Jesú fyrir vilja Guðs, til hinna heilögu, sem eru í Efesus, og trúuðu í Kristi Jesú.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi.

Blessaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, er oss hefir blessað með allri andlegri blessun á himnum í Kristi,

eins og hann útvaldi oss í honum fyrir grundvöllun heimsins, til þess að vér skyldum vera heilagir og flekklausir frammi fyrir honum í kærleika,

og fyrirhugaði oss til sonarstöðu hjá sér fyrir Jesúm Krist, eftir velþóknun vilja síns,

til lofs dýrðar náðar sinnar, er hann veitti oss náðarsamlega í hinum elskaða,

en í honum höfum vér endurlausnina fyrir blóð hans, fyrirgefningu afbrotanna, eftir ríkdómi náðar hans,

sem hann lét yfirgnæfa oss til handa í allri speki og skilningi,

þá er hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns eftir velþóknun sinni, er hann hafði ásett sér í honum,

um ráðstöfun á fyllingu tímanna, að endursafna öllu í Kristi, því sem er á himnum, og því sem er á jörðunni,

í honum, sem vér og höfum öðlast arfleifð í, fyrirhugaðir eftir fyrirætlun hans, sem framkvæmir alt eftir ráði vilja síns,

til þess að vér skyldum vera til lofs dýrðar hans, vér sem áður höfum vonað á Krist,

í hverjum og þér, þá er þér heyrðuð orð sannleikans, fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar — í hverjum og þér, er þér urðuð trúaðir, voruð innsiglaðir með hinum heilaga anda fyrirheitisins,

sem er pantur arfleifðar vorrar, til endurlausnar eignarinnar, til lofs dýrðar hans.

Fyrir því læt eg heldur eigi af, síðan eg heyrði um trúna hjá yður á Drottin Jesúm og kærleikann til allra heilagra,

að þakka fyrir yður, um leið og eg minnist yðar í bænum mínum,

til þess að Guð Drottins vors Jesú Krists, faðir dýrðarinnar, gefi yður anda speki og opinberunar í þekkingu á honum

og upplýsi augu hjarta yðar, til þess að þér vitið, hver von köllunar hans er, hver ríkdómur dýrðar arfleifðar hans meðal hinna heilögu,

og hver hinn yfirgnæfandi mikilleikur máttar hans gegn oss, sem trúum, eftir framkvæmd kraftar styrkleiks hans,

sem hann framkvæmdi á Kristi, þá er hann reisti hann frá dauðum og setti hann sér til hægri handar á himnum,

ofar hverri tign og valdi og mætti og herradómi og hverju því nafni, sem nefnt er, ekki einungis á þessari öld, heldur og á hinni komandi,

og alt lagði hann undir fætur hans, og gaf hann til að vera höfuð yfir öllum kirkjunni,

sem er líkami hans, fylling hans, sem fyllir alt í öllum.