Himnaför Maríu
Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.
Almennur kirkjutími · Vika 19Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraÁ Íslandi er hátíðin færð til sunnudags — staðfesta þarf hvor sunnudagurinn gildir.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Opinberunarbókin 11:19a; 12:1-6a, 10ab
- Davíðssálmur
- Sálmur 45:10, 11, 12, 16
- 2. lesning
- 1. Korintubréf 15:20-27
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 1:39-56
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Upp, skapað allt í heimi hér,að heiðra Guð, vorn Drottin,hið minnsta verk hans mikið er,um mátt hans allt ber vottinn.Þótt kóngar fylgdust allir aðmeð auð og veldi háu,þeir megnuðu' ei hið minnsta blaðað mynda' á blómi smáu.Hvað get ég sagt? Ó, málið mittei megnar, Guð, að lýsa,hve margt er ástarundur þitt,hve öflug stjórnin vísa.Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,á málum óteljandi,ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð,á himna dýrðarlandi. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.
Sálmur — SS 9, 1-6. 9-11 — Drottinn, gef mér visku
Andstef · Speki þín, Drottinn, sé með mér og hjálpi mér í störfum mínum.
1„Guð feðra minna og Drottinn miskunnarinnar * þú sem gjörðir alla hluti með orði þínu
2og skipaðir manninn með speki þinni * að hann skyldi drottna yfir sköpuninni, sem af þér var gjörð,
3að hann skyldi stjórna heiminum eftir jöfnuði * og réttlæti og fullnægja rétti með einlægu hjarta:
4Gef mér spekina, sem situr hjá hásæti þínu * og hafna mér eigi meðal barna þinna.
5Því að ég er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar * veikur maður og skammær og skortir skilning á dómi og lögum.
6Því að þótt einhver sé fullkominn meðal mannanna barna * mun hann að engu metinn verða, ef speki þín er eigi með honum.
9Og speki þín er með þér, sú sem þekkir verk þín og var og viðstödd * þegar þú gjörðir heiminn, og vissi, hvað þóknanlegt var augum þínum og hvað rétt var í boðorðum þínum.
10Send hana út af þínum heilaga himni og frá hásæti tignar þinnar * að hún sé með mér og vinni með mér, að ég megi vita, hvað þér er þóknanlegt.
11Því að hún þekkir og skilur alla hluti og mun leiða * mig hóflega í verkum mínum og varðveita mig með mætti sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Speki þín, Drottinn, sé með mér og hjálpi mér í störfum mínum.
Sálmur 117
Andstef · Trúfesti Drottins varir að eilífu.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Trúfesti Drottins varir að eilífu.
Stuttur ritningarlestur
Fil 2, 14-15Gjörið allt án þess að mögla og hika, til þess að þér verðið óaðfinnanlegir og hreinir, flekklaus Guðs börn meðal rangsnúinnar og gjörspilltrar kynslóðar. Þér skínið hjá þeim eins og ljós í heiminum.
Stutt svarvers
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Hlutdeild mín á landi lifenda.
Þú ert hæli mitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég hrópa til þín, Drottinn: * Þú ert hæli mitt.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sól af hæðum lýsi öllum þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Guð vildi upphefja Maríu móður Krists yfir allar verur á himni og jörðu. Áköllum hann í trausti:Lít til móður Sonar þíns og bænheyr oss.Faðir miskunnsemdarinnar, vér færum þér, sem gafst oss Maríu að móður og fordæmi, þakkir,helga hjörtu vor vegna fyrirbæna hennar.Þú, sem gerðir Maríu árvaka fyrir orði þínu og trúfasta þernu þína,vegna fyrirbæna hennar, gerðu oss að þjónum og lærisveinum Sonar þíns.Þú, sem styrktir Maríu er hún stóð við krossinn og fylltir hana gleði upprisunnar,aflétt þjáningum vorum og staðfest von vora vegna fyrirbæna hennar.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, lind og upphaf hjálpræðis vors, gef að líf vort sé ávallt vitnisburður kærleika þíns, svo að lofsöng vorum til þín linni hvorki á jörðu né himni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · UPPNUMNING MARÍU MEYJAR TIL HIMNA
Almáttugi eilífi Guð, þú hefur uppnumið hina flekklausu Maríu mey, móður Sonar þíns, til himneskrar dýrðar á líkama og sál. Vér biðjum, veit að um leið og vér beinum huga vorum að hinu himneska verðskuldum vér hlutdeild í dýrð hennar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Er vaknar ást á vori lifs.Himinninn er nálægt þér.Múr sinn rjúfi hjarta þitt.Himinninn er nálægt þér.Er rústir lifna og léttir þrautog regnið lífgar eyðisand,þorsta þínum svalað er.Himinninn er nálægt þér.Ef friðarhliðin ljúkast upp.Himinninn er nálægt þér.Ljós Guðs dýrðar skín við þér.Himinninn er nálægt þér.Ef hlekkjum efans þú losnar fráog hjartað fagnar nýrri þrá,þorsta þínum svalað er.Himinninn er nálægt þér. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Kristur steig upp til himna og bjó flekklausri móður sinni ævarandi stað, hallelúja.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Kristur steig upp til himna og bjó flekklausri móður sinni ævarandi stað, hallelúja.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Fyrir Evu lokuðust hlið himnaríkis öllu mannkyni; fyrir Maríu opnuðust þau upp á gátt að nýju, hallelúja.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fyrir Evu lokuðust hlið himnaríkis öllu mannkyni; fyrir Maríu opnuðust þau upp á gátt að nýju, hallelúja.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · María mey hefur verið hafin hátt upp yfir alla himnana; komið allir menn og vegsamið Krist Konung því konungsdómur hans mun vara að eilífu.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María mey hefur verið hafin hátt upp yfir alla himnana; komið allir menn og vegsamið Krist Konung því konungsdómur hans mun vara að eilífu.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 30Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt, en þá sem hann réttlætti, hefur hann einnig vegsamlega gjört.
Stutt svarvers
María er upp numin til himins. * Englar Guðs fagna.
María er upp numin til himins. * Englar Guðs fagna.
Þeir tilbiðja Drottin og lofsyngja honum.
Englar Guðs fagna.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
María er upp numin til himins. * Englar Guðs fagna.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Allar kynslóðir munu mig sæla segja, því að mikla hluti hefur Hinn voldugi við mig gjört, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú leist auðmýkt sællar Maríu meyjar og hófst hana til slíkrar tignar að þinn eingetni Sonur fæddist í holdi af henni. Í dag krýndir þú hana einstakri dýrð. Veit oss fyrir bænir hennar að vér frelsumst fyrir leyndardóm endurlausnar þinnar og verðskuldum að upphefjast af þér, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007