20. sunnudagur í almennum kirkjutíma
Sunnudagur á hinum almenna kirkjutíma — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.
Almennur kirkjutími · Vika 20Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
- 1. lesning
- Jesaja 56:1, 6-7
- Davíðssálmur
- Sálmur 67:2-3, 5, 6, 8
- 2. lesning
- Rómverjabréfið 11:13-15, 29-32
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 15:21-28
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Úr erli dagsins inn ég geng.Þá opnast faðmur þinn.Ó, slá þú, hjartans hörpustrengog hugga anda minn!Ég heyri, Jesús, heilagt orð,svo hlekkir falla af mérog nýt þess við þitt nægtaborðað náðin gefins er.Í brauði og víni birtist þú.Þinn bikar fullur er.Veit huga mínum hreina trúsem himin Drottins sér.Lát hverfa heimsins hryggð og syndsvo hjartað öðlist frið;í trú sem öll er óljós myndGuðs eilífð blasir við.Gjör, Kristur, hjartað heilt í trúer handa sér ei skil.Í kápu úr skýjum kemur þúog kallar dómsins til. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Blessuð ert þú, María, því að hjálpræði heimsins er frá þér út gengið; nú í dýrð þinni fagnar þú að eilífu með Drottni.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Blessuð ert þú, María, því að hjálpræði heimsins er frá þér út gengið; nú í dýrð þinni fagnar þú að eilífu með Drottni.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · María mey er hafin upp yfir englakórinn; látið alla trúaða fagna og blessa Drottin.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María mey er hafin upp yfir englakórinn; látið alla trúaða fagna og blessa Drottin.
Sálmur 149
Andstef · Drottinn hefur gert þig svo dýrlega að lofgjörð þín mun aldrei hætta að enduróma meðal manna.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn hefur gert þig svo dýrlega að lofgjörð þín mun aldrei hætta að enduróma meðal manna.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Jes 61, 10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefir klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefir sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúður býr sig skarti sínu.
Stutt svarvers
Í dag var María mey * upp numin til himna.
Í dag var María mey * upp numin til himna.
Hún á hlut frá öndverðu í sigri Krists.
Upp numin til himna.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Í dag var María mey * upp numin til himna.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Þessi dóttir Jerúsalem er fögur og yndisleg þar sem hún fer upp til himna líkt og þegar birtir af degi og sólin rennur upp.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Lofsyngjum Frelsara vorn, sem valdi Maríu mey til að vera móður sína. Vér skulum biðja hann:Megi móðir þín, Drottinn, biðja fyrir oss.Orðið eilífa, þú valdir Maríu sem hina óspilltu örk bústaðs þíns,leystu oss frá spillingu syndarinnar.Þú ert endurlausnari vor sem gerðir hina flekklausu Maríu mey að þínum skírasta bústað og musteri Heilags Anda,gerðu oss að musteri Anda þíns að eilífu.Konungur konunganna, þú reistir móður þína, á líkama og sál, til himna;hjálpa oss að snúa huga vorum að því sem er hið efra.Drottinn himins og jarðar, þú krýndir Maríu og settir hana þér á hægri hönd sem drottningu,gjör oss verðug þess að deila þessari dýrð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú hefur uppnumið hina flekklausu Maríu mey, móður Sonar þíns, til himneskrar dýrðar á líkama og sál. Vér biðjum, veit að um leið og vér beinum huga vorum að hinu himneska verðskuldum vér hlutdeild í dýrð hennar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Er vaknar ást á vori lifs.Himinninn er nálægt þér.Múr sinn rjúfi hjarta þitt.Himinninn er nálægt þér.Er rústir lifna og léttir þrautog regnið lífgar eyðisand,þorsta þínum svalað er.Himinninn er nálægt þér.Ef friðarhliðin ljúkast upp.Himinninn er nálægt þér.Ljós Guðs dýrðar skín við þér.Himinninn er nálægt þér.Ef hlekkjum efans þú losnar fráog hjartað fagnar nýrri þrá,þorsta þínum svalað er.Himinninn er nálægt þér. Amen.
Sálmur 122
Andstef · María var numin upp til himna; englarnir fagna. Þeir blessa Drottin og syngja Honum lof.
1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig * „Göngum í hús Drottins.“
2Fætur vorir standa * í hliðum þínum, Jerúsalem.
3Jerúsalem, þú hin endurreista * borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,
4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins – það er regla fyrir Ísrael * til þess að lofa nafn Drottins,
5því að þar standa dómarastólar * stólar fyrir Davíðs ætt.
6Biðjið Jerúsalem friðar * hljóti heill þeir, er elska þig.
7Friður sé kringum múra þína * heill í höllum þínum.
8Sakir bræðra minna og * vina óska ég þér friðar.
9Sakir húss Drottins, Guðs vors * vil ég leita þér hamingju.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María var numin upp til himna; englarnir fagna. Þeir blessa Drottin og syngja Honum lof.
Sálmur 127
Andstef · Meyjan María var numin upp til hinna himnesku brúðarsala, þar sem Konungur konunganna situr á glampandi veldisstóli.
1Ef Drottinn verndar eigi borgina * vakir vörðurinn til ónýtis.
2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð * sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!
3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni * ávöxtur móðurkviðarins er umbun.
4Eins og örvar í hendi kappans * svo eru synir getnir í æsku.
5Sæll er sá maður, er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim * þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Meyjan María var numin upp til hinna himnesku brúðarsala, þar sem Konungur konunganna situr á glampandi veldisstóli.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Ó, þú dóttir, sem blessuð ert af Drottni, fyrir þig eigum vér hlut í ávexti lífs þíns.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ó, þú dóttir, sem blessuð ert af Drottni, fyrir þig eigum vér hlut í ávexti lífs þíns.
Stuttur ritningarlestur
1Kor 15, 22-23Eins og allir deyja fyrir samband sitt við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist. En sérhver í sinni röð: Kristur sem frumgróðinn, því næst, við komu hans, þeir sem honum tilheyra.
Stutt svarvers
María mey er hafin * upp yfir englakórinn.
María mey er hafin * upp yfir englakórinn.
Blessaður er Drottinn sem nam hana upp.
Upp yfir englakórinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
María mey er hafin * upp yfir englakórinn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Í dag var María mey upp numin til himna; fagnið því hún ríkir með Kristi að eilífu.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú hefur uppnumið hina flekklausu Maríu mey, móður Sonar þíns, til himneskrar dýrðar á líkama og sál. Vér biðjum, veit að um leið og vér beinum huga vorum að hinu himneska verðskuldum vér hlutdeild í dýrð hennar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007