Saltarinn 45Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 45

Til helgisöngs. Lag: Liljur. Kóraíta-maskil. Ástarkvæði.

Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, eg flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.

Fegurri ert þú en mannanna börn. yndisleik er úthelt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.

Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.

Sæk fram, stíg á hervagn sakir trygðar og réttlætis, þá mun hægri hönd þín sýna þér ógurlega hluti.

Örvar þínar eru hvestar, þjóðir falla að fótum þér; fjandmenn konungs eru horfnir.

Hásæti þitt er guðshásæti um aldur og æfi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.

Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig fagnaðarolíu framar félögum þínum.

Eintóm myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.

Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófir-gulls.

Heyr, dóttir, og sjá, og hneig eyra þitt og gleym þjóð þinni og föðurlandi,

að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.

Og dóttirin Týrus mun koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar.

Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.

Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung; meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.

Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.

Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land alt.

Eg vil gjöra nafn þitt minnistætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og æfi.