Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Eftir Kóraita. Fyrir kvenraddir. Ljóð.
Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
Látum vötn hans gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hans. Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. Sela.
Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað hins hæsta.
Guð er í henni, eigi mun hún bifast; Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, hann þrumaði, jörðin nötraði.
Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. Sela.
Komið, skoðið dáðir Drottinn, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu;
hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.
Hættið og viðurkennið, að eg er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.
Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. Sela.