Saltarinn 47Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 47

Til helgisöngs. Kóraita-sálmur.

Allar þjóðir! klappið saman lófum, fagnið fyrir Guði með gleði-ópi.

Því að Drottinn, hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.

Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora.

Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. Sela.

Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, Drottinn með lúðurhljómi.

Syngið Guði, syngið; syngið konungi vorum, syngið!

Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið lofsöng.

Guð er orðinn konungur yfir heiðingjunum, Guð er seztur í sitt heilaga hásæti. R

Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar; hann er mjög hátt upphafinn.