Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Kóraíta-maskíl.
Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss; frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, í fornöld.
Með hendi þinni stöktir þú burt heiðingjum, en gróðursettir þá; þú lékst þjóðir harðlega, en útbreiddir þá.
Því að eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim.
Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakob til handa.
Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.
Því að eg treysti eigi boga mínum og sverð mitt veitir mér eigi sigur,
Sheldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar.
Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. Sela.
Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveilum vorum.
Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnunum, og hatursmenn vorir taka herfang.
Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal heiðingjanna.
Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, græðir ekkert á söluverði þeirra.
Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim, er búa umhverfis oss.
þú gjörir oss að orðskvið meðal heiðingjanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.
Liðlangan daginn stendur smán mín mér fyrir sjónum og skömm hylur auglit mitt,
af því eg verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.
Alt þetta hefir mætt oss og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn.
Hjarta vort hefir eigi hörfað undan, né skref vor beygt út af vegi þínum,
svo að þú mættir kremja oss sundur á stað sjakalanna og hylja oss niðdimmu.
Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða
mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?
Nei, þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé.
Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur.
Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?
Því að sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina.
Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.