Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Lát mig ná rétti mínum, Guð; berst fyrir málefni mínu gegn miskunnarlausri þjóð; bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.
Því að þú ert sá Guð, sem er mér vígi; hví hefir þú útskúfað mér? hví verð eg að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?
Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig, þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga og til bústaðar þíns,
svo að eg megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs minnar fagnandi gleði, og lofa þig með gígjuhljómi, ó Guð, þú Guð minn.
Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun eg fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.