Saltarinn 42Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 42

Til helgisöngs. Kóraíta-maskil.

Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð.

Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði, hve nær mun eg fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs.

Tár mín urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig liðlangan daginn: Hvar er Guð þinn?

Um það vil eg hugsa og úthella sál minni, sem í mér er, hversu eg gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi.

Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun eg fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

Guð minn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil eg minnast þín langt í burtu frá Jórdan- og Hermonlandi, langt í burtu frá litla fjallinu.

Eitt flóðið kallar á annað, þegar fossar þínir duna; allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig.

Um daga býður Drottinn út náð sinni og um nætur syng eg honum ljóð, bæn til Guðs lífs míns.

Eg mæli til Guðs: Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér, hví verð eg að ganga harmandi, kúgaður af óvinum?

Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum, er þeir liðlangan daginn segja við mig: Hvar er Guð þinn?

Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun eg fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.