Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.
Sæll er sá, er gefur gaum bágstöddum; á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.
Drottinn varðveitir hann og lætur hann halda lífi, hann mun gæfu njóla í landinu og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans.
Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm.
Eg sagði: Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að eg hefi syndgað móti þér.
Óvinir mínir biðja mér óbæna: Hve nær skyldi hann fara að deyja og nafn hans hverfa?
Og ef einhver kemur til þess að vitja um mig, talar hann tál; hjarta hans safnar að sér ilsku, hann fer út og lætur dæluna ganga.
hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á út mér til handa:
»Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar«.
Jafnvel sá, er eg lifði í sátt við, sá er eg treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.
En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að eg megi endurgjalda þeim.
Af því veit eg, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.
Vegna sakleysis míns hélzt þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu.
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.