Saltarinn 40Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 40

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.

Eg hefi vonað og vonað á Drottin, og hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt.

Hann dró mig upp úr glötunar-gröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi.

Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það og óttast og treysta Drottni.

Sæll er sá maður, er gjörir Drottinn að athvarfi sínu og snýr sér eigi til hinna dramblátu né þeirra, er snúist hafa afleiðis til lygi.

Mörg hefir þú, Drottinn, Guð minn, gjört dásemdarverk þín og áform oss til handa, ekkert kemst í samjöfnuð við þig. Ef eg ætti að boða þau og kunngjöra, eru þau fleiri en tölu verði á komið.

Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, — þú hefir gefið mér opin eyru — brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi.

Þá mælti eg: Sjá, eg kem; í bókrollunni eru mér reglur settar.

Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér.

Eg hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ya af eg hefi eigi haldið vörunum aftur, það veizt þú, Drottinn!

Eg leyndi eigi réttlæti þínu í hjarta mér, eg kunngjörði trúfesti þína og hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og frygð í hinum mikla söfnuði.

Drag þá eigi heldur, Drottinn, miskunn þína í hlé við mig, lát náð þína og trúfesti ætíð vernda mig.

Því að ótal hættur umkringja mig, misgjörðir mínar hafa náð mér, svo að eg má eigi sjá; þær eru fleiri en hárin á höfði mér, mér felst hugur.

Lát þér, Drottinn, þóknast að frelsa mig; skunda, Drottinn, mér til hjálpar.

Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, alla þá, er sitja um líf mitt, til þess að svifta mig því, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.

Lát þá verða forviða yfir smán sinni, alla þá, er segja um mig: Hæ, hæ!

En allir þeir, er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir, er unna hjálpræði þínu, skulu sífett segja: Vegsamaður sé Drottinn!

Eg er vesall og snauður, en Drottinn ber umhyggju fyrir mér. Þú ert fulltingi mitt og frelsari; tef eigi, Guð minn!