Saltarinn 39Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 39

Til helgisöngs, eftir Jedútún. Davíðs-sálmur.

Eg sagði: Eg vil gefa gætur að vegum mínum, til þess að drýgja eigi synd með tungunni; eg vil leggja haft á munn minn, meðan hinn óguðlegi er í nánd við mig.

Eg var hljóður, — steinþagði, en kvöl mín ýfðist.

Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp; eg talaði með tungu minni.

Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum; lát mig sjá, hversu skammær eg er.

Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og æfi mín er sem ekkert fyrir þér, andgustur einn eru allir menn. Sela.

Sem tómur skuggi gengur maðurinn un, þeir gjöra háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur.

Hvers vona eg þá, Drottinn? Von mín er öll á þér.

Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti.

Eg þegi, eg opna eigi munninn, því að þú hefir gjört það.

Lát plágu þína víkja frá mér, eg verð að engu fyrir krafti handar þinnar.

Þá er þú heitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. Sela.

Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að eg er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir.

Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en eg fer burt og er eigi til framar.