Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Daviðs-sálmur. Minningarljóð.
Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og hirt mig ekki í heift þinni;
því að örvar þínar standa fastar í mér og hönd þín liggur þungt á mér.
Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar,
því að misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð; sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.
Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar.
Eg er beygður og mjög bugaður, liðlangan daginn geng eg harmandi,
Sþví að lendar mínar eru fullar bruna og enginn: heilbrigður blettur er á líkama mínum.
Eg er lémagna og kraminn mjög, kveina hærra en ljónið öskrar.
Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér.
Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér.
Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni og frændur mínir standa fjarri.
Þeir, er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir, er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik liðlangan daginn.
En eg er sem daufur, eg heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn;
Og er sem maður, er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans.
Því að á þig, Drottinn, vona eg, Í þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn;
því að eg segi: Lát þá eigi hlakka yfir mér, - eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.
Því að eg er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.
Eg játa misgjörð mína, harma synd mína,
gg þeir, sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir, er hata mig að ástæðulausu,
þeir, er gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því eg legg stund á það, sem gott er.
Yfirgef mig ekki, Drottinn; Guð minn, ver ekki fjarri mér;
skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín.