Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Ver eigi of bráður vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá, er ranglæti fremja;
því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir.
Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,
þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það, sem hjarta þitt girnist.
Fel Drottinn vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá,
hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag.
Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann, ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns, er svik fremur.
Lát af reiði og slepp heiftinni; ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins;
því að illvirkjarnir verða afmáðir, en þeir, er vona á Drottin, fá landið til eignar.
Innan stundar eru engir óguðlegir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir;
Men hinir voluðu fá landið til eignar,. gleðjast yfir ríkulegri gæfu.
Óguðlegur maður býr yfir illu gegn réttlátum, nistir tönnum gegn honum,
Drottinn hlær að honum, því að hann sér að dagur hans kemur.
Óguðlegir bregða sverðinu og benda boga sína, til þess að fella hinn volaða og snauða, til þess að brytja niður hina ráðvöndu
sverð þeirra lendir í þeirra eigin hjörtum og bogar þeirra munu brotnir verða.
Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra óguðlegra,
því að armleggur óguðlegra verður brotinn, en réttláta styður Drottinn.
Drottinn þekkir daga ráðvandra og arfleifð þeirra varir að eilífu,
Á vondum tímum verða þeir eigi bl skammar, á hallæristímum hljóta þeir saðning.
Því að óguðlegir farast, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins:, þeir hverfa, sem reykur hverfa þeir.
Óguðlegur maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur;
því að þeir, sem Hann blessar, fá landið til eignar, en þeim, sem hann bölvar, verður útrýmt.
Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans;
bók hann falli, þá liggur hann ekki flatur, því að Drottinn heldur í hönd hans.
Ungur var eg og gamall er eg orðinn, en aldrei sá eg réttlátan mann yfirgefinn, né niðja hans biðja sér matar.
Ætíð er hann mildur og lánar og niðjar hans verða öðrum til blessunar.
Forðastu ilt og gjörðu gott, þá munt þú búa kyrr um aldur;
því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína guðhræddu. Hinir ranglátu verða afmáðir um aldur og niðjum óguðlegra útrýmt.
Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa í því um aldur.
Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það, sem rétt er;
lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur.
Hinn óguðlegi skimar eftir hinum réttláta og situr um að drepa hann,
en Drottinn ofurselur hann honum ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.
Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, þá mun hann hefja þig upp til þess að fá landið til eignar; þú skalt horfa á þegar óguðlegum verður útrýmt.
Eg sá hinn óguðlega í ofstopa sínum og þenja sig út sem grænt tré á gróðrarstöðvum sínum;
Og eg gekk fram hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, eg leitaði hans, en hann fanst ekki.
Gef gætur að hinum ráðvanda og til á hinn hreinskilna, því að friðsamir menn eiga framtíð fyrir höndum;
en afbrotamönnum verður útrýmt öllum samt, framtíðarvon óguðlegra bregzt.
Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.
Drottinn liðsinnir þeim og bjargar þeim, bjargar þeim undan hinum óguðlega og hjálpar þeim, af því að þeir leituðu hælis hjá honum.