Saltarinn 36Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 36

Til helgisöngs. Eftir Davíð, þjón Drottins.

Rödd syndarinnar talar til hins óguðlega í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans;

því að hún smjaðrar fyrir honum í augum hans, til þess að misgjörð hans verði uppvís og hann verði fyrir hatri.

Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel;

í hvílu sinni hyggur hann á tál; hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.

Drottinn, til himna nær miskunn þín, á til skýjanna trúfesti þín;

réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf; mönnum Og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð; mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.

Því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.

Lát miskunn þína haldast við þá, er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá, sem hreinhjarlaðir eru.

Lát eigi fót hins hrokafulla koma yfir mig, né hönd óguðlegra hrekja mig burt.

Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.