Hjarta Jesú
Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.
Almennur kirkjutími · Vika 10Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 5. Mósebók 7:6-11
- Davíðssálmur
- Sálmur 103:1-2, 3-4, 6-7, 8, 10
- 2. lesning
- 1. Jóhannesarbréf 4:7-16
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 11:25-30
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Hugur minn, til himna snú,lát þú, munnur, lofsöng hljóma,lofgjörð Jesú hjarta róma,tunga mín, það tigna þú.Jesú nafn mitt hjarta hrífi,hreki kvíða minn og sorg,glöð og þakklát svo að svífisöngrödd mín að dýrðar borg.Styrkur veikum, stoð í þrautum,stjarna vonar hjörtum blíð,himneskt ljós á harmabrautum,heilsa' og líf á dauðatíð.Ég, sem fallinn fæddur er,hlýt með sorg að segja þetta:Syndari er nafn mitt rétta,sæmra nafn ei sekum ber.En því nauðanafni breytirnafn, er sonur Guðs sér tók,Jesús, hjarta þitt mér veitirnafn á lífsins ritað bók.Hjarta Jesú, það er þúvildir hér í heimi bera,hugfast mér lát jafnan vera,styrkja veika von og trú.Lát þitt hjarta´ að síðsta svefnisvölun andans veita mér,gef það blessað nafn ég nefni,nær ég seinast héðan fer. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Jesús stóð og kallaði: Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jesús stóð og kallaði: Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.
Sálmur 149
Andstef · Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.
Stuttur ritningarlestur
Jer 31, 33Í þessu skal sáttmálinn fólginn vera, sá er ég gjöri við Ísraels hús eftir þetta segir Drottinn: Ég legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra, og ég skal vera þeirra Guð og þeir skulu vera mín þjóð.
Stutt svarvers
Takið á yður mitt ok * og lærið af mér.
Takið á yður mitt ok * og lærið af mér.
Því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur.
Og lærið af mér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Takið á yður mitt ok * og lærið af mér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Af líknsemi hefur Guð komið til lýðs síns og frelsað hann, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Bræður (og systur), biðjum til Drottins Jesú sem er hógvær og af hjarta lítillátur. Segjum við hann:Drottinn, þú sem ert góður, miskunna þú oss.Jesús, í þér býr öll fylling guðdómsins,gef oss hlut í guðdómlegu lífi þínu.Jesús, í þér eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir,lát oss þekkja fyrir Kirkju þína hve margháttuð speki Guðs er.Jesús, Faðirinn hafði velþóknun á þér,hjálpa oss að heyra orð þitt og geyma það.Jesús, af gnægð þinni höfum vér öll þegið,úthell yfir oss gnóttir náðar Föðurins og sannleikann.Jesús, þú ert uppspretta lífs og heilagleika,gjör oss óaðfinnanleg og heilög í kærleika.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, að vér, sem heiðrum hjarta þíns elskaða Sonar og minnumst hinna miklu kærleiksverka hans oss til handa, verðskuldum hlutdeild þeirrar náðar er fram streymir í gnægð sinni frá þessari himnesku gjafalind. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, þá náð að eiga Jesúeinkavin í hverri þraut.Ó, þá heill að halla megahöfði sínu' í Drottins skaut.Ó, það slys því hnossi' að hafna,hvílíkt fár á þinni braut,ef þú blindur vilt ei varpavon og sorg í Drottins skaut.Eigir þú við böl að búa,bíðir freistni, sorg og þraut,óttast ekki, bænin ber ossbeina leið í Drottins skaut.Hver á betri hjálp í nauðum?Hver á slíkan vin á braut,hjartans vin, sem hjartað þekkir?Höllum oss í Drottins skaut.Ef vér berum harm í hjarta,hryggilega dauðans þraut,þá hvað helst er Herrann Jesúshjartans fró og líknar skaut.Vilji bregðast vinir þínir,verðirðu' einn á kaldri braut,flýt þér þá að halla' og hneigjahöfuð þreytt í Drottins skaut. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Drottinn, drottna þú mitt á meðal óvina þinna með sanngjörnu oki þínu.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, drottna þú mitt á meðal óvina þinna með sanngjörnu oki þínu.
Sálmur 111
Andstef · Drottinn er náðugur og líknsamur; hann gefur fæðu þeim sem óttast hann.
1Hallelúja. Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta * í félagi og söfnuði réttvísra.
2Mikil eru verk Drottins, verð íhugunar öllum þeim * er hafa unun af þeim.
3Tign og vegsemd eru verk hans * og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
4Hann hefur látið dásemdarverka sinna minnst verða * náðugur og miskunnsamur er Drottinn.
5Hann hefur gefið fæðu þeim, er óttast hann * hann minnist að eilífu sáttmála síns.
6Hann hefur kunngjört þjóð sinni kraft verka sinna * með því að gefa þeim eignir heiðingjanna.
7Verk handa hans eru trúfesti og réttvísi * öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg,
8örugg um aldur og ævi * framkvæmd í trúfesti og réttvísi.
9Hann hefur sent lausn lýð sínum * skipað sáttmála sinn að eilífu, heilagt og óttalegt er nafn hans.
10Upphaf speki er ótti Drottins, hann er fögur hyggindi öllum þeim * er iðka hann. Lofstír hans stendur um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er náðugur og líknsamur; hann gefur fæðu þeim sem óttast hann.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Sjá Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sjá Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins.
Stuttur ritningarlestur
Ef 2, 4-7Guð er auðugur að miskunn. Af mikilli elsku sinni, sem hann gaf oss, hefur hann endurlífgað oss með Kristi, þegar vér vorum dauðir vegna misgjörða vorra. Af náð eruð þér hólpnir orðnir. Guð hefur uppvakið oss í Kristi Jesú og búið oss stað í himinhæðum með honum. Þannig vildi hann á komandi öldum sýna hinn yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar með gæsku sinni við oss í Kristi Jesú.
Stutt svarvers
Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.
Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.
Hann gjörði oss að konungsríki og prestum til að þjóna Guði vorum og Föður.
Með blóði sínu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kristur elskar oss og leysti oss frá syndum vorum * með blóði sínu.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Drottinn hefur hafið oss upp og dregið oss til hjarta síns því hann gleymdi ekki fyrirheiti sínu um miskunnina, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, almáttugi Guð, að vér, sem heiðrum hjarta þíns elskaða Sonar og minnumst hinna miklu kærleiksverka hans oss til handa, verðskuldum hlutdeild þeirrar náðar er fram streymir í gnægð sinni frá þessari himnesku gjafalind. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007