Fimmta Mósebók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 7

Þegar Drottinn, Guð þinn, leiðir þig inn í landið, sem þú heldur nú inn í, til þess að taka það til eignar, og hann hefir stökt burt undan þér mörgum þjóðum: Hetítum, Gírgasítum, Amorítum, Kanaanítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, sjö þjóðum, sem eru fjölmennari og voldugri en þú,

og er Drottinn, Guð þinn, gefur þær á vald Þitt og þú sigrast á þeim, þá skalt þú gjöreyða þeim; þú skalt eigi SJöra sáttmála við þær né sýna þeim vægð.

Og eigi skalt þú mægjast Við þær; þú skalt hvorki gefa sonum þeirra dætur þínar né heldur taka dætur þeirra til handa sonum þínum.

Því að þær mundu snúa sonum þínum frá hlýðni við mig og koma þeim til að dýrka aðra guði; mundi reiði Drottins þá upptendrast í gegn yður og hann eyða þér skyndilega.

Heldur skuluð þér svo með þá fara: þér skuluð rífa niður ölturu þeirra, brjóta í sundur merkissteina þeirra, höggva sundur asérur þeirra og brenna skurðgoð þeirra í eldi.

Því að þú ert Drottni, Guði þínum, helgaður lýður; þig hefir Drottinn, Guð þinn, kjörið til að vera eignarlýður hans um fram allar þjóðir, sem eru á yfirborði jarðarinnar.

Ekki var það fyrir þá sök, að þér væruð fjölmennari en allar aðrar þjóðir, að Drottinn lagði ást á yður og kjöri yður, því að þér eruð allra þjóða minstir;

heldur sökum þess að Drottinn elskar yður og af því að hann vildi halda eiðinn, sem hann sór feðrum yðar, þá leiddi Drottinn yður burt með sterkri hendi og leysti þig úr þrælahúsinu, undan valdi Faraós, Egiptalands konungs.

Fyrir því skalt þú vita, að Drottinn, Guð þinn, er hinn sanni Guð, hinn trúfasti Guð, er heldur sáttmálann og miskunnsemina í þúsund ættliðu við þá, sem elska hann og varðveita boðorð hans.

En þeim, sem hann hata, geldur hann líka hverjum og einum sjálfum með því að láta þá farast; hann dregur það eigi fyrir þeim, sem hata hann; hverjum og einum geldur hann þeim sjálfum.

Fyrir því skalt þú varðveita skipanir þær, lög og ákvæði, sem eg legg fyrir þig í dag, svo að þú breytir eftir þeim.

Ef þér nú hlýðið lögum þessum og varðveitið þau og breytið eftir þeim, þá mun Drottinn, Guð þinn, halda við þig þann sáttmála og miskunnsemi, sem hann sór feðrum þínum;

hann mun elska þig, blessa þig og margfalda þig, og hann mun blessa ávöxt kviðar þíns og ávöxt lands þíns, korn þitt, aldinlög þinn og olíu þína, viðkomu nautgripa þinna og burði hjarðar þinnar, í landinu sem hann sór feðrum þínum að gefa þér.

Þú munt blessuð verða öllum þjóðum framar; meðal karlmanna þinna og kvenmanna skal enginn vera ófrjósamul, né heldur meðal fénaðar þíns.

Og Drottinn mun bægja frá þér hvers konar sjúkleik, og enga af hinum vondu egipzku sóttum, sem þú þekkir, mun hann á þig leggja, heldur mun hann senda þær öllum þeim, er þig hata.

En þú skalt eyða öllum þeim þjóðum, sem Drottinn, Guð þinn, gefur á þitt vald; þú skalt ekki líta þær vægðarauga og þú skalt eigi dýrka guði þeirra, því að það mundi verða þér að tálsnöru.

Ef þú skyldir segja í hjarta þínu: þessar þjóðir eru fjölmennari en eg; hvernig fæ eg rekið þær burt?

þá ver þú ekki hræddur við þær; minstu þess, hvað Drottinn, Guð þinn, gjörði við Faraó og alla Egipta,

hinna miklu máttarverka, er þú sást með eigin augum, táknanna og stórmerkjanna, og hvernig Drottinn, Guð þinn, leiddi þig út með sterkri hendi og útréttum armlegg; eins mun Drottinn, Guð þinn, fara með allar þær þjóðir, sem þú nú ert hræddur við.

Já, jafnvel geitunga mun Drottinn, Guð. þinn, senda meðal þeirra, unz allir þeir eru dauðir, sem eftir hafa orðið og falið hafa sig fyrir þér.

Þú skalt ekki hræðast þá, því að Drottinn, Guð þinn, er með þér, hinn mikli og ógurlegi Guð.

Og Drottinn, Guð þinn, mun stökkva þessum þjóðum á burt undan þér smám saman; þú mátt ekki eyða þeim skjótlega, svo að villidýrunum fjölgi eigi um of fyrir þig.

En Drottinn, Guð þinn, mun gefa þær á þitt vald og koma miklum ruglingi á þær, unz þær eru gjöreyddar.

Og hann mun gefa konunga þeirra í hendur þér, og þú munt afmá nöfn þeirra undir himninum; enginn mun standast fyrir þér, unz þú hefir gjöreytt þeim.

Skurðlíkneski guða þeirra skalt þú brenna í eldi; þú skalt eigi girnast silfrið og gullið, sem á þeim er, né taka það handa þér, svo að það verði þér eigi að tálsnöru; því að slíkt er andstyggilegt fyrir Drottni, Guði þínum;

og eigi skalt þú færa andstyggilegan hlut inn í hús þitt, svo að þú fallir ekki í sama bannið, sem hann er í; þú skalt hafa megnan viðbjóð og andstygð á því, því að það er bannfærður hlutur. Velgjörðir Drottins eiga að hvetja Ísraelsmenn til stöðugrar hlýðni.