Gamla testamentiðLögmálið
Þetta eru þá skipanir þær, lög og ákvæði, sem Drottinn, Guð yðar, hefir boðið að þér skylduð læra og breyta eftir í því landi, er þér haldið nú yfir til, til þess að fá það til eignar,
svo að þú óttist Drottin, Guð þinn, og varðveitir öll lög hans og skipanir, sem eg legg fyrir þig, bæði þú sjálfur og sonur þinn og sonarsonur þinn, alla æfidaga þína og svo að þú verðir langlífur.
Heyr því, Ísrael, og gæt þess að breyta eftir þeim, svo að þér vegni vel og þér megið fjölga stórum, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefir heitið þér, í landi, sem flýtur í mjólk og hunangi.
Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð, Drottinn einn!
Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum.
Þessi orð, sem eg legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst;
og þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau, þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leyst til hvíldar og þegar þú fer á fætur.
Þú skalt binda þau til merkis á hönd þér og hafa þau sem minningarbönd á milli augna þinna;
og þú skalt skrifa þau á dyrustafi húss þíns og á borgarhlið þín.
Þegar Drottinn, Guð þinn, leiðir þig inn í landið, sem hann sór feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakob, að gefa þér, stórar og fagrar borgir, sem þú ekki hefir reist,
Hog hús full af öllum góðum hlutum, án þess að þú hafir fylt þau, og úthöggna brunna, sem þú eigi hefir út höggið, vingarða og olíutré, sem þú ekki hefir gróðursett, og þú etur og verður saddur,
þá gæt þú þín, að þú gleymir ekki Drottins, sem leiddi þig út af Egiptalandi, út úr þrælahúsinu.
Drottinn, Guð þinn, skalt þú óttast, og hann skalt þú dýrka og við nafn hans skalt þú sverja.
Eigi skuluð þér elta nema aðra guði af guðum þjóða þeirra, er umhverfis yður búa;
því að Drottinn, Guð þinn, sem býr hjá þér, er vandlátur Guð; til þess að eigi upptendrist reiði Drottins, Guðs þíns, í gegn þér og hann eyði þér úr landinu.
Eigi skuluð þér freista Drottins, Guðs yðar, eins og þér freistuðuð hans í Massa.
Varðveitið kostgæfilega skipanir Drottins, Guðs yðar, og fyrirmæli hans og lög, þau er hann hefir fyrir þig lagt.
Og þú skalt gjöra það, sem rétt er og gott í augum Drottins, svo að þér vegni vel og þú komist inn í og fáir til eignar landið góða, sem Drottinn sór feðrum þínum,
með því hann stökkvir burt öllum óvinum þínum undan þér, eins og Drottinn hefir heitið.
Þegar sonur þinn spyr þig á síðan og segir: Hvað eiga fyrirmælin, lögin og ákvæðin að þýða, sem Drottinn, Guð vor, hefir fyrir yður lagt?
þá skalt þú segja við son þinn: Vér vorum þrælar Faraós í Egiptalandi, en Drottinn leiddi oss af Egiptalandi með sterkri hendi.
Og Drottinn gjörði mikil og skæð tákn og undur á hendur Egiptalandi, Faraó og öllu húsi hans að oss ásjáandi.
Og hann leiddi oss út þaðan, til þess að fara með oss hingað og gefa oss landið, sem hann sór feðrum vorum.
Og Drottinn bauð oss að halda öll þessi lög, með því að óttast Drottin, Guð vorn, svo að oss mætti vegna vel alla daga og hann halda oss á lífi, eins og alt til þessa.
Og vér munum taldir verða réttlátir, ef vér gætum þess að breyta eftir öllum þessum skipunum fyrir augliti Drottins, Guðs vors, eins og hann hefir boðið oss.