Matteusarguðspjall 11Krans-útgáfa

Matteusarguðspjall 11

Og það varð, er Jesús hafði lokið fyrirskipunum sínum til þeirra tólf lærisveina sinna, að hann fór þaðan, til þess að kenna og prédika í borgum þeirra.

En er Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists, gjörði hann honum orðsendingu með lærisveinum sínum og lét segja við hann:

Ert þú sá sem koma á, eða eigum vér að vænta annars?

Og Jesús svaraði og sagði við þá: Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þér heyrið og sjáið:

Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, og dauðir upp rísa og fátækum er boðað fagnaðarerindi.

Og sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér.

En er þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: Hvað fóruð þér út í óbygðina að sjá? Reyr af vindi skekinn?

Eða hvað fóruð þér út að sjá? Mann mjúkklæddan? Sjá, þeir sem bera mjúk klæði, eru í höllum konunganna.

Eða til hvers fóruð þér út? Til að sjá spámann? Já, eg segi yður, jafnvel meira en spámann;

því að hann er sá, sem um er ritað: Sjá, eg sendi sendiboða minn fyrir augliti þínu, er greiða mun veg þinn fyrir þér.

Sannlega segi eg yður: eigi hefir fram komið meðal þeirra, er af konum eru fæddir, meiri maður en Jóhannes skírari; en hinn minsti í ríki himnanna er honum meiri.

En frá dögum Jóhannesar skírara og alt til þessa verður ríki himnanna fyrir ofbeldi, og ofbeldismenn taka það með valdi;

því að allir spámennirnir og lögmálið spáðu alt fram að Jóhannesi.

Og ef þér viljið meðtaka það, þá er hann sá Elía, er koma skal.

Hver sem eyru hefir að heyra, hann heyri.

Við hvað skal eg samlíkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum, sem á torgum sitja og kalla til félaga sinna og segja:

Vér lékum fyrir yður á hljóðpípu, og þér dönsuðuð ekki; vér sungum sorgarljóð, og þér kveinuðuð ekki.

Því að Jóhannes kom, og át hvorki né drakk, og menn segja: Hann hefir illan anda.

Mannsins sonur kom, og át og drakk, og menn segja: Sjá, átvagl og vínsvelgur! vinur tollheimtumanna og syndara! En spekin réttlættist af gjörðum sínum.

Þá tók hann að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gjört flest kraftaverk, fyrir það, að þær hefðu eigi gjört iðrun:

Vei þér, Kórasín; vei þér, Betsaída; því að ef þau kraftaverk hefðu gjörð verið í Týrus og Sídon, sem gjörst hafa í ykkur, hefðu þær fyrir löngu gjört iðrun í sekk og ösku.

Þó segi eg ykkur, að Týrus og Sídon mun verða bærilegra á dómsdegi en ykkur.

Og þú, Kapernaum! skyldir þú verða hafin til himins? — Til Heljar skalt þú niður stíga; því að ef þau kraftaverk hefðu gjörð verið í Sódómu, sem gjörst hafa í þér, stæði hún alt til þessa dags.

Þó segi eg yður, að landi Sódómu mun verða bærilegra á dómsdegi en þér.

Á þeim tíma tók Jesús til máls og sagði: Eg vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefir hulið þessa hluti fyrir spekingum og vitrum mönnum, og opinberað þá smælingjum.

Já, faðir, því að þannig varð það, sem þóknanlegt er fyrir augliti þínu.

Alt er mér á vald gefið af föður mínum, og enginn gjörþekkir soninn nema faðirinn, og eigi heldur gjörþekkir nokkur föðurinn nema sonurinn, og sá er sonurinn vill opinbera hann.

Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita yður hvíld.

Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að eg er hógvær og lítillátur í hjarta, og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld;

því að mitt ok er indælt og byrði mín létt.