Matteusarguðspjall 10Krans-útgáfa

Matteusarguðspjall 10

Og hann kallaði til sín þá tólf lærisveina sína og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum, til þess að reka þá út, og til þess að lækna hvers konar sjúkdóma og hvers konar krankleika.

En nöfn þeirra tólf postula eru þessi: Fyrstur er Símon, sem Pétur kallast, og Andrés bróðir hans; Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir hans;

Filippus og Bartólómeus; Tómas og Matteus, tollheimtumaðurinn; Jakob Alfeusson og Taddeus;

Símon Kananei og Júdas Ískaríot, sá hinn sami er sveik hann.

Þessa tólf sendi Jesús frá sér, bauð þeim og sagði: Farið eigi á veg heiðingja og gangið eigi inn í nokkura borg Samverja;

en farið heldur til hinna týndu sauða af húsi Ísraels.

En á ferðum yðar skuluð þér prédika og segja: Ríki himnanna er í nánd.

Læknið sjúka, uppvekið dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda; ókeypis hafið þér meðtekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta.

Fáið yður eigi gull né silfur né eirpeninga í belti yðar;

eigi mal til ferðar, né tvo kyrtla né skó né staf, því að verður er verkamaðurinn fæðis síns.

En í hverja þá borg eða þorp, sem þér komið, þá spyrjist fyrir, hver sé maklegur þar, og dveljist þar, þangað til þér farið burt.

En er þér gangið inn í húsið, þá heilsið því;

og sé húsið maklegt, þá komi friður yðar yfir það; en sé það ekki maklegt, þá hverfi friður yðar til yðar aftur.

Og sé sá nokkur, er ekki vill meðtaka yður, og ekki heldur hlýða á orð yðar, þá farið burt úr því húsi eða þeirri borg, og hristið dustið af fótum yðar.

Sannlega segi eg yður: Bærilegra mun landi Sódómu og Gómorru verða á degi dómsins en þeirri borg.

Sjá, eg sendi yður sem sauði á meðal úlfa; verið því hygnir sem höggormar og falslausir sem dúfur.

Gætið yðar fyrir mönnunum, því að þeir munu framselja yður ráðsamkomum, og í samkundum sínum munu þeir húðstrýkja yður;

og fyrir landshöfðingja og konunga munuð þér leiddir verða mín vegna, þeim og heiðingjunum til vitnisburðar.

En er þeir framselja yður, þá verið ekki áhyggjufullir um, hvernig eða hvað þér skuluð tala; því að það mun verða gefið yður á þeirri stundu, hvað þér eigið að tala;

því að ekki eruð það þér, sem talið, heldur andi föður yðar, er í yður talar.

En bróðir mun framselja bróður til lífláts og faðir barn sitt, og börnin munu rísa gegn foreldrunum og valda þeim dauða.

Og þér munuð verða hataðir af öllum vegna nafns míns; en sá er stendur stöðugur alt til enda, hann mun hólpinn verða.

En er þeir ofsækja yður í þessari borg, þá flýið í hina, því að sannlega segi eg yður, þér munuð alls eigi ljúka við borgir Ísraels, áður en mannsins sonur kemur.

Ekki er lærisveinninn yfir meistara sínum, ekki heldur þjónninn yfir húsbónda sínum;

nóg er lærisveininum að verða sem meistari hans og þjóninum að verða sem húsbóndi hans. Hafi þeir kallað húsföðurinn Beelsebúl, hve miklu fremur þá heimilismenn hans?

Óttist þá því eigi; því að ekkert er hulið, er eigi verði opinbert, né leynt, er ekki verði augljóst.

Það sem eg segi yður í myrkrinu, skuluð þér tala í birtunni, og það sem þér heyrið hvíslað í eyra, skuluð þér prédika á þökum uppi.

Og hræðist eigi þá sem líkamann deyða, en geta eigi deytt sálina; en hræðist heldur þann, er mátt hefir til að tortíma bæði sálu og líkama í Gehenna.

Eru eigi tveir spörvar seldir fyrir einn smápening? og ekki fellur einn þeirra til jarðar án vilja föður yðar;

en jafnvel öll höfuðhár yðar eru talin.

Óttist því eigi; þér eruð meira verðir en margir spörvar.

Hver sem því kannast við mig fyrir mönnunum, við hann mun eg einnig kannast fyrir föður mínum á himnum.

En hver sem afneitar mér fyrir mönnunum, honum mun eg og afneita fyrir föður mínum á himnum.

Ætlið ekki að eg sé kominn frið að senda á jörðina; ekki kom eg frið að senda, heldur sverð.

Því að eg er kominn til að gjöra mann ósáttan við föður sinn og dóttur við móður sína og sonarkonu við tengdamóður sína,

og óvinir mannsins eru heimilismenn hans.

Hver sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og hver sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.

Og hver sem ekki tekur sinn kross og fylgir mér eftir, er mín ekki verður.

Hver sem finnur líf sitt, mun týna því, en hver sem hefir týnt lífi sínu mín vegna, mun finna það.

Hver sem meðtekur yður, meðtekur mig, og hver sem meðtekur mig, meðtekur þann, er sendi mig.

Hver sem meðtekur spámann upp á spámanns nafn, mun fá spámanns laun, og hver sem meðtekur réttlátan mann upp á nafn réttláts manns, mun fá laun réttláts manns.

Og hver sem gefur einum þessara smælingja svaladrykk einungis upp á lærisveins nafn, sannlega segi eg yður: hann mun alls ekki missa af launum sínum.