Saltarinn 103Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 103

Davíðs-sálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og alt, sem í mér er, hans heilaga nafn;

lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans,

Ssem fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein,

leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn,

sem mettar þig gæðum; þú yngist upp sem örninn.

Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.

Hann gjörði Móse vegu sína kunna og Ísraelsbörnum stórvirki sín;

náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæzkuríkur;

hann þreytir eigi deilur æfinlega og er eigi eiliflega reiður.

Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum,

heldur svo hár sem himininn er yfir jörðunni, svo voldug er miskunn hans við þá, er óttast hann.

Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.

Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim, er óttast hann.

Því að hann þekkir eðli vort. minnist þess að vér erum duft.

Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni;

þegar vindur blæs á hann, er hann horfinn og staður hans þekkir hann ekki framar.

En miskunn Drottins við þá, er óttast hann, varir frá eilifð til eilifðar og réttlæti hans nær til barnabarnanna,

heima, er varðveita sáttmála hans og munu að breyta eftir boðum hans.

Drottinn hefir reist hásæti sitt á himnum, og konungdómur hans drotnar yfir alheimi.

ofið Drottinn, þér englar hans, þér voldugu hetjur, er framkvæmið boð hans, er þér heyrið hljóminn af orði hans.

Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans, er framkvæmið vilja hans.

Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans; lofa þú Drottin, sála mín.