Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill; þú ert klæddur hátign og vegsemd,
Hann hylur sig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk.
Hann sem hvelfir hásal sinn í vötnunum, sem gjörir ský að vagni sínum, sem fer um á vængjum vindarins.
Hann gjörir vindana að sendiboðum sínum, bálandi eld að þjónum sínum.
Hann grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og æfi.
Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin,
Teu fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu;
þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað, sem þú hafðir búið þeim stað;
þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar.
Hann sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna;
þær drykkja öll dýr merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn;
yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna.
Hann vökvar fjöllin frá hásal sínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna.
Hann lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðunni
gg vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins.
Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett,
þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi.
Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana.
Hann gjörði tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga undir.
Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik.
Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.
Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum,
en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld.
Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.
Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór.
Þar fara skipin um og Levíatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar.
Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma;
þú gefur þeim, og þau tina, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum.
Þú þyrgir auglit þitt, þá skelfast þau þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til duftsins.
Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar.
Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum!
Hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur.
Eg vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan eg er til.
Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! eg gleðst yfir Drottni.
Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.