Saltarinn 105Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 105

Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, Lind gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!

Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.

Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra, er leita Drottins, gleðjist.

Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífett eftir augliti hans.

Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,

þér niðjar Abrahams, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.

Hann, Drottinn, er vor Guð, um víða veröld ganga dómar hans.

Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,

sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,

þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,

þá er hann mælti: Þér mun eg gefa Kanaanland sem erfðahlut yðar.

Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir og bjuggu þar útlendingar,

þá fóru þeir frá einni þjóð til annarar og frá einu konungsríki til annars lýðs.

Hann leið engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna.

»Snertið eigi við mínum smurðu og gjörið eigi spámönnum mínum mein«.

Þá er hann kallaði hallæri yfir landið, braut í sundur hverja stoð brauðsins,

þá sendi hann mann á undan þeim, Jósef var seldur sem þræll.

Þeir þjáðu fætur hans með fjötrum, hann var lagður í járn,

alt þar til, er orð hans rættust, og orð Drottins létu hann standast raunina.

Konungur sendi og lét hann lausan, drotnari þjóðanna leysti fjötra hans;

hann gjörði hann að herra yfir húsi sínu og að drotnara yfir öllum eigum sínum,

að hann gæti fjötrað höfðingja eftir vild og kent öldungum hans speki.

Síðan kom Ísrael til Egiptalands, og Jakob var gestur í landi Kams.

Og hann gjörði lýð sinn mjög mannmargan og lét þá verða fleiri en fjendur þeirra,

hann sneri hjörtum þeirra til haturs við lýð sinn, til lævísi við þjóna sína.

Hann sendi Móse, þjón sinn, og Aron, er hann hafði útvalið,

hann gjörði tákn sín á þeim og undur í landi Kams.

Hann sendi myrkur og gjörði dimt, en þeir gáfu orðum hans engan gaum;

hann breytti vötnum þeirra í blóð og lét fiska þeirra deyja;

Land þeirra varð kvikt af froskum, alla leið inn í svefnherbergi konungs;

hann bauð, þá komu flugur, mývargur um öll héruð þeirra;

hann gaf þeim hagl fyrir regn, bálandi eld í land þeirra;

hann laust vínvið þeirra og fíkjutré og braut sundur trén í héruðum þeirra;

hann bauð, þá kom jarðvargur og óteljandi engisprettur,

sem átu upp allar jurtir í landi þeirra og átu upp ávöxtinn af jörð þeirra;

hann laust alla frumburði í landi þeirra, frumgróða alls styrkleitis þeirra.

Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli, enginn hrasaði af kynkvíslum hans.

Egiptaland gladdist yfir burtför þeirra, því að ótti við þá var fallinn yfir þá.

Hann breiddi út ský sem hlíf og eld til þess að lýsa um nætur.

Þeir báðu, þá lét hann lynghæns koma og mettaði þá með himnabrauði.

Hann opnaði klett, svo að vatn vall upp, rann sem fljót um eyðimörkina;

hví að hann mintist síns heilaga heits við Abraham þjón sinn,

gg leiddi lýð sinn út með gleði, sína útvöldu með fögnuði.

Og hann gaf þeim lönd heiðingjanna, það, sem þjóðirnar höfðu aflað með striti, fengu þeir til eignar,

til þess að þeir skyldu halda lög hans og varðveita lögmál hans. Halelúja.