Saltarinn 106Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 106

Halelúja! Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins, kunngjört allan lofstír hans..

Sælir eru þeir, sem gæta réttarins, sem iðka réttlæti alla tíma.

Minst þú mín, Drottinn, með velþóknun þeirri, er þú hefir á lýð þínum, vitja mín með hjálpræði þínu,

að eg megi horfa með unun á hamingju þinna útvöldu, gleðjast yfir gleði þjóðar þinnar, fagna með eignarlýð þínum.

Vér höfum syndgað ásamt feðrum vorum, höfum breytt illa og óguðlega.

Feður vorir í Egiptalandi gáfu eigi gætur að dásemdarverkum þínum, mintust eigi þinnar miklu miskunnar, og sýndu hinum hæsta þrjózku hjá Hafinu rauða.

Þó hjálpaði hann þeim sakir nafns síns, til þess að kunngjöra mátt sinn;

hann hastaði á Hafið rauða, svo að það þornaði upp, og lét þá ganga um djúpin eins og um eyðimörku;

hann frelsaði þá af hendi hatursmanna þeirra og leysti þá af hendi óvinanna.

Vötnin huldu fjendur þeirra, ekki einn af þeim komst undan.

Þá trúðu þeir orðum hans, sungu honum lof.

En þeir gleymdu fljótt verkum hans, treystu eigi á ráð hans;

þeir fyltust lysting í eyðimörkinni og freistuðu Guðs í öræfunum,

Og hann veitti þeim bæn þeirra og sendi þeim megrun.

Þá öfunduðust þeir við Móse í herbúðunum, við Aron, hinn heilaga Drottinn.

Jörðin opnaðist og svalg Datan og huldi flokk Abírams;

Eldur kviknaði í flokki þeirra, í loginn brendi hina óguðlegu.

Þeir bjuggu til kálf hjá Hóreb og lutu steyptu líkneski,

Og létu vegsemd sína í skiftum fyrir mynd af uxa, er gras etur.

Þeir gleymdu Guði, frelsara sínum, þeim er stórvirki gjörði í Egiptalandi,

dásemdarverk í landi Kams, óttaleg verk við Hafið rauða.

Þá hugði hann á að tortíma þeim, ef Móse, hans útvaldi, hefði eigi gengið fram fyrir hann og borið af blakið, til þess að afstýra reiði hans, svo að hann skyldi eigi tortíma.

Þeir fyrirlitu hið unaðslega land og trúðu eigi orðum hans;

þeir mögluðu í tjöldum sínum og hlýddu eigi á raust Drottins.

Þá lyfti hann hendi sinni gegn þeim og sór að láta þá falla í eyðimörkinni,

tvístra niðjum þeirra meðal heiðingjanna og dreifa þeim um löndin.

Þeir höfðu mök við Baal-Peór og átu fórnir dauðra skurðgoða.

Og þeir egndu hann til reiði með athæfi sínu, og brauzt því út plága meðal þeirra.

En Pínehas gekk fram og skar úr og þá staðnaði plágan.

Og honum var reiknað það til réttlætis, frá kyni til kyns, að eilífu.

Síðan reittu þeir hann til reiði hjá Meríba-vötnum, þá fór illa fyrir Móse þeirra vegna,

því að þeir sýndu þrjózku anda hans og honum hrutu ógætnisorð af vörum.

Þeir eyddu eigi þjóðunum, er Drottinn hafði boðið þeim,

heldur lögðu þeir lag sitt við heiðingjana og lærðu athæfi þeirra;

þeir dýrkuðu skurðgoð þeirra, og þau urðu þeim að snöru;

þeir færðu að fórnum sonu sína og dætur sínar vættunum

Og útheltu saklausu blóði, blóði sona sinna og dætra, er þeir fórnfærðu skurðgoðum Kanaans, svo að landið vanhelgaðist af blóðskuldinni.

Þeir saurguðust af verkum sínum og frömdu frygðrof með athæfi sínu.

Þá upptendraðist reiði Drottins gegn lýð hans og hann fékk viðbjóð á arfleifð sinni.

Hann gaf þá á vald heiðingjum, og hatursmenn þeirra drotnuðu yfir þeim.

Óvinir þeirra þjökuðu þá, og þeir urðu að beygja sig undir vald þeirra.

Mörgum sinnum bjargaði hann þeim, en þeir sýndu þrjózku í ráði sínu og urðu að lúta sakir misgjörðar sinnar.

Samt leit hann á neyð þeirra, er hann heyrði kvein þeirra;

hann mintist sáttmála síns við þá og aumkaðist yfir þá sakir sinnar miklu miskunnar

gg lét þá finna miskunn hjá öllum þeim, er höfðu haft þá burt hernumda.

Hjálpa þú oss, Drottinn, Guð vor, og safna oss saman frá heiðingjunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, viðfrægja lofstír þinn.

Tofaður sé Drottinn, Ísraels Guð, frá eilífð til eilífðar, og allur lýðurinn segi: Amen! Halelúja!