Saltarinn 102Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 102

Bæn volaðs manns, þá er hann örmagnast og úthellir kveini sínu fyrir Drottni.

Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist fyrir þig.

Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar eg er í nauðum staddur; hneig að mér eyra þitt, þegar eg kalla, flyt þér að bænheyra mig.

Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur.

Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að eg gleymi að neyta brauðs míns;

sakir kveinstafa minna loða bein mín við hörundið;

eg líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum.

Eg ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.

Liðlangan daginn smána óvinir mínir mig, mínir æðandi fjandmenn hafa mig að formælingarviðkvæði;

því að eg ef ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum,

sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og fleygt mér burt.

Dagar mínir eru sem hallur skuggi og eg visna sem gras.

En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns;

þú munt rísa upp til þess að miskunna Zíon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin.

Því að þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar.

Þá munu heiðingjarnir óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína,

því að Drottinn byggir upp Zíon og birtist í dýrð sinni;

hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra.

Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin;

því að Drottinn leit niður af sínum helgu hæðum, horfði frá himni til jarðar,

til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans,

að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Zíon og lofstír hans í Jerúsalem,

begar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin, til þess að þjóna Drottni.

Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína.

Eg segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri æfinni, þar sem þín ár vara frá kyni til kyns.

Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina og himnarnir eru verk handa þinna.

Þeir líða undir lok, en þú stendur; þeir fyrnast sem fat, þú skiftir þeim sem klæðum og þeir hverfa.

En þú ert hinn sami og þín ár fá engan enda.

Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.