Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Eg vil syngja um miskunn og rétt, lofsyngja þér, Drottinn.
Eg vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda — hve nær kemur þú til mín? í grandvarleik hjartans vil eg ganga um í húsi mínu.
Eg læt mér eigi til hugar koma neitt níðingsverk; eg hata þá, sem illa breyta, þeir fá engin mök við mig að eiga.
Rangsnúið hjarta skal frá mér víkja, eg kannast eigi við hinn vonda.
Hver sem rægir náunga sinn í leyni,; honum eyði eg; hver sem er hrokafullur og drembilátur í hjarta, hann fæ eg ekki þolað.
Augu mín horfa á hina trúföstu í landinu, að þeir megi búa hjá mér; sá sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.
Enginn má dvelja í húsi mínu, er svik fremur; sá, er lygar mælir, stenzt eigi fyrir augum mínum.
Á hverjum morgni eyði eg öllum óguðlegum í landinu, til þess að útrýma úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum.