Saltarinn 100Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 100

Þakkarfórnar-sálmur. Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, gjörvöll lönd!

Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarópi.

Vitið, að Drottinn þér Guð, hann hefir skapað oss og hans erum vér,. lýður hans og gæzluhjörð.

Gangið inn um hlið hans meéð þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng; lofið hann, vegsamið nafn hans.

Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu, og trúfesti hans frá kyni til kyns.