Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Drottinn er konungur orðinn — þjóðirnar skjálfi, hann sem situr uppi yfir kerúbunum — jörðin nötri.
Drottinn er mikill á Zíon og hátt upp hafinn yfir alla lýði.
Þeir skulu lofa nafn þitt, hið mikla óg óttalega. Heilagur er hann!
Þú ert konungur, sem elskar réttinn, þú hefir staðfest réttvísina, í rétt og réttlæti hefir þú framið í Jakob.
Tignið Drottinn, Guð vorn, og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann!
Móse og Aron eru meðal presta hans, Samúel meðal þeirra, er ákalla nafn hans; þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá;
hann talar til þeirra í skýstólpanum, því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim.
SDrottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá, þú reyndist þeim fyrirgefandi Guð og sýknaðir þá af gjörðum þeirra.
Tignið Drottinn, Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli, því að heilagur er Drottinn, Guð vör.