Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk; hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum heiðingjanna opinberaði hann réttlæti sitt.
Hann mintist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt; öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.
Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið;
leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi;
með lúðrum og básúnuhljómi látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottins.
Hafið drynji og alt, sem í því er, heimurinn og þeir, sem í honum búa.
Straumarnir skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll saman
fyrir Drottni, því að hann kemur til að dæma jörðina; hann dæmir heiminn meéð réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.