Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Drottinn er konungur orðinn, jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist.
Ský og sorti voru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi voru grundvöllur hásætis hans,
eldur fór fyrir honum og bálaðist umhverfis spor hans;
leiftur hans lýstu um jarðríki, jörðin sá það og nötraði.
Björgin bráðnuðu sem vax fyrir Drottni, fyrir drotni gjörvallrar jarðarinnar.
Himnarnir kunngjörðu réttlæti hans, og allar þjóðir sáu dýrð hans.
Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir féllu fram fyrir honum;
Zíon heyrði það og gladdist, Júdadætur fögnuðu, sakir dóma þinna Drottinn.
Því að þú, Drottinn, ert hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði.
Drottinn elskar þá, er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.
Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum.
Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn.