Saltarinn 96Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 96

Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!

Syngið Drottni, lofið nafn hans,. kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

Segið frá dýrð hans meðal heiðingjanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra þjóða.

Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.

Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.

Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.

Tjáið Drottni, þér þjóðakynkvíslir, tjáið Drottni vegsemd og vald.

STjáið Drottinn dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans;

fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd.

Segið meðal heiðingjanna: Drottinn er konungur orðinn, hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, Á hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.

Himininn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og alt, sem í því er,

foldin fagni og alt, sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðarópi

fyrir Drottni, því að hann kemur, því að hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.